oktoberfest

September, Október & Nóvemberfest

Alla föstudaga og laugardaga í September, Október og Nóvember bjóðum við hópum að halda sitt eigið Októberfest. 

Hvernig virkar það?

Dagskráin gæti hljómað svona
(Þetta er bara hugmynd sem við mælum með):

  • ​17:00 – Hópurinn mætir og fær sér einn ískaldan bjór
  • 17:30 – Hendum öllum í Axarkast eða Lasertag
  • 19:00 – Októberfest matur – Bratwurst, Pretzel, Bjórpylsur, karrýsósa, franskar og meðlæti
  • 21:00 – Pub Quiz eða Kareoke kvöld
  • 22:00-23:00 – Bjór, svo bjór, svo annar bjór, svo annar bjór og svo leigubíll.

Salurinn er skreyttur eins og í Munchen, í boði eru alvöru Októberfest veitingar, bratwurst, pretzel og auðvitað STÓR bjór. 

Það eru margar útfærslur af kvöldinu

  • Þið getið eingöngu komið í mat og drykk og andað að ykkur alvöru Októberfest stemningu
  • Þið getið komið í það sem við gerum best sem er að fara í skemmtilegar afþreyingar og enda svo stuðið í þýskum Októberfest veitingum og partý.
  • Þið getið komið í Októberfest kareoki veislu þar sem mikilvægast af öllu er að syngja hátt og drekka sátt.

Auðvitað er mætingarskylda í Októberfest búning 

Ef þið viljið tilboð í ykkar hóp, fyllið þá út skráningarformið hér á síðunni og við svörum von bráðar!

Viljum taka fram að það gætu alltaf verið fleiri hópar í salnum á sama tíma.

Hugmyndir af dagskrá

Þessir pakkar hér að ofan eru eingöngu hugmyndir af dagskrá. Hægt er að breyta afþreyingunni eftir ykkar höfði, bæta við eða breyta drykkjum eða veitingum.

Matur:

  • Októberfest veitingar: Pretzel, Bratwurst, Pólskar- & Ostapylsur. Karrýsósa, Kartöflusalat og krullufranskar:  3990 kr á mann
  • 120 gr hamborgari, krullufröllur, sósur og meðlæti – 3300 kr á man

 Drykkir

  • 60 stórir Bolar eða Gull af krana  55.000 kr 
  • Hvítvíns eða Rauðvínsbelja 12.990 kr

Afþreying

  • Pub quiz – 2900 kr á mann
  • Kareoki keppni – verðlaunaafhending fyrir sigurvegara og stemming – 2900 kr á mann
  • Litlir leikir í salnum, beer pong, píla, foosball og boxtækis keppni – Verðlauna afhending fyrir sigurvegara – 2500 kr á mann
  • Útrásin – 6990 kr á mann (lágmarki 4 manneskjur)
  • Axarkast – 3990 kr á mann
  • Úti Lasertag- 4990 kr á mann
  • Archery tag, Klessuboltar, Fótboltagolf, Minigolf, Paintball og fleiri afþreyingar er hægt að bæta við

 

Skráðu á póstlistann

Takk fyrir!