Skemmtun fyrir alla!

 

Nú er yndislegt sumar senn á enda og því tilvalið að taka vel á móti haustinu með því að hrista hópinn ykkar saman í Skemmtigarðinum. Við bjóðum upp á margs konar skemmtun fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja bregða á leik, efla andann og eiga eftirminnilegan dag.

Opið alla daga ársins
Pöntunarsími: 534 1900 eða info@skemmtigardur.is 

Aðstaða fyrir:
Afmælisveislur
Skemmtiferðir
Grillveislur
Óvissuferðir
Steggjapartý / Gæsun
Hópefli
Fjölskylduskemmtanir
Fyrirtækjadagar

    

Ævintýra minigolf

 

Tveir glæsilegir 18 holu ævintýra minigolfvellir hafa litið dagsins ljós í Skemmtigarðinum með samtals 36 holum. Ævintýra minigolf er í dag ein vinsælasta afþreying Skemmtigarða um allan heim. Minigolfið er skemmtun fyrir alla fjölskylduna og alla aldurshópa.

 

Í vetur munum við svo opna 1000 fermetra glæsilegan innanhúss ævintýra minigolfvöll, Frumskógarvöllinn sem nánar verður tilkynnt um síðar.

Skemmtun fyrir alla

Skemmtigarðurinn í Grafarvogi býður upp á margs konar skemmtun fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja bregða á leik, efla andann og eiga eftirminnilegan dag í ævintýralegu umhverfi. 

 

 

Paintball & lasertag

 

Litbolti og lasertag eru frábærir leikir fyrir allar gerðir hópa. 
Spilaðir eru skemmtilegir leikir á stórum útivöllum þar sem hópurinn leysir auðveldar þrautir saman. Keflavöllurinn, frumskógarvöllurinn og Villta vestrið bjóða upp á óvæntar ævintýri á bakvið hvert horn.

 

Bæklingur 2010