Fótboltagolfmót Egils Gull
LOKSINS LOKSINS!
SKEMMTILEGASTA FÓTBOLTAGOLFMÓT ÁRSINS VERÐUR HALDIÐ 11.JÚLÍ Við hjá Skemmtigarðinum ætlum að halda stærsta og jafnframt skemmtilegasta fótboltagolfmót sumarsins laugardaginn 11.júlí kl.11:00. Í samstarfi við Gull léttöl. Það fylgir einn ískaldur Egils Gull úr Gullvagninum á mann Keppt verður í liðakeppni á 12 holu velli og geta fjórir skráð sig saman í lið. Þetta verður ekki hefðbundið fótboltagolf því á sumum holum þurfa liðin að klára holuna á öðruvísi máta. Einsog t.d - pútta með hælnum, upphafshögg þarf að vera markmannsspyrna og fleira. Við hvetjum alla vinahópa, fyrirtæki eða fjölskyldur til þess að skrá sig enda glæsilegir vinningar í boði að verðmæti meira en 1.000.000 Kr. Gull vagninn verður á svæðinu þar sem boðið verður upp á Egils gull og léttar veitingar. Það er engin skylda að kunna fótbolta enda snýst þetta bara um að hafa gaman og njóta þess að fá sér léttar veitingar og fara í fótboltagolf. Skráningargjald er 12.000 kr per lið eða 3.000 kr á mann og inn í því verði er þátttökugjald í mótið og einn ískaldur Egils Gull úr Gullvagninum Nánari upplýsingar um mótsreglur verða sendar nokkrum dögum fyrir mót. Skráðu liðið þitt hér að neðan! |
Verðlaun:
1.sæti 10 rútur af Egils Gull Stórglæsilegur ferðahátalari frá Nova (sjá mynd fyrir neðan) Flaska af Jagermeister Flaska af Masi Campofiorin rauðvín Gjafabréf í Paintball fyrir 10 manns Ótakmarkaður aðgangur í fótboltagolf fyrir liðið í allt sumar 2.sæti Gjafabréf í Paintball fyrir 10 manns Flaska af Jagermeister Flaska af Masi Campfiorin 5 skipta klippikort í fótboltagolf fyrir alla í liðinu 3.sæti Kassi af Pepsi Max Kassi af Collab 10 skipta klippikort í fótboltagolf fyrir alla í liðinu |
Loading...